VELKOMIN!

Þessi vefur er lokaverkefni í námskeiðinu Hönnun námsefnis, stafræn miðlun og eflandi kennslufræði við Háskóla Íslands.
Á vefnum er efni sem samsvarar um það bil einum kafla í hefðbundinni námsbók. Hér má til dæmis finna stuttar samantektir, myndrænar útskýringar og gagnvirk verkefni sem styðja við skilning og upprifjun námsefnis í líffræði.

Vefurinn hefur það að markmiði að auka aðgengi að námsefninu og bjóða upp á fjölbreyttar leiðir til að vinna með það. Með því er leitast við að koma betur til móts við ólíkar þarfir nemenda og styðja þannig betur við nám þeirra.

Líffræði: Fjölbreytileiki lífs á jörðinni

Hvert sem litið er, allt frá dýpstu svæðum hafsins til jökla og hvera, má finna lífverur sem hafa aðlagast ólíkum og oft erfiðum aðstæðum. 

Fjölbreytileiki lífs á jörðinni er gríðarlegur og hér finnast lífverur sem eru allt frá örsmáum bakteríum upp í risavaxin tré. Bygging þeirra er einnig mjög ólík, allt frá einföldum frumverum og sveppum til flókinna lífvera eins og spendýra. Talið er að á jörðinni séu um 8,7 milljónir tegunda, og menn eru aðeins ein þeirra.

Þrátt fyrir þennan mikla fjölbreytileika eiga allar lífverur ákveðin grundvallareinkenni sameiginleg. 1) Allar lífverur eru skipulagðar og byggðar upp úr frumum; 2) Þær þurfa efni og orku til að starfa og viðhalda lífi; 3) Lífverur geta fjölgað sér og þroskast, sem tryggir framhald tegundarinnar; 4) Þær bregðast við breytingum í umhverfi sínu og geta viðhaldið stöðugu innra ástandi þrátt fyrir ytri breytingar; 5) Þær hafa lífverur getu til að aðlagast umhverfi sínu yfir tíma, sem er lykilatriði í þróun þeirra.